Jólakveðjur í efri deild
Föstudaginn 21. desember 1990


     Guðmundur H. Garðarsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil fyrir hönd þingdeildarmanna þakka forseta hlý orð og góðar óskir okkur og fjölskyldum okkar til handa. Þá vil ég þakka virðulegum forseta fyrir réttláta og góða fundarstjórn í deildinni, sérstaklega á síðustu annríkisdögum. Við færum forseta og fjölskyldu hans okkar bestu jóla- og nýársóskir og ég læt í ljós þá von að við megum öll hittast hér heil á nýju ári.
    Ég tek undir þakkir forseta til skrifstofustjóra og starfsmanna þingsins fyrir gott samstarf og vel unnin störf. Jafnframt færi ég starfsfólki bestu jóla- og nýársóskir.
    Ég vil biðja hv. þingdeildarmenn að staðfesta þessar þakkir og óskir til forseta deildarinnar með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]