Jólakveðjur í sameinuðu þingi
Föstudaginn 21. desember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Ég þakka hv. 7. þm. Norðurl. e. fyrir hlýhug til mín og fjölskyldu minnar og öllum hv. alþm. fyrir að taka undir orð hv. þm.
    Ég endurtek óskir mínar um gleðileg jól til handa öllum hv. alþm. og starfsfólki Alþingis, svo og árna ég Íslendingum öllum gleðilegra jóla.