Fangelsi og fangavist
Þriðjudaginn 15. janúar 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Það er rétt sem fram kom hjá hv. 2. þm. Reykn. að misskilningur hafði orðið á milli mín og hans varðandi lok umræðunnar um þetta mál, þ.e. 2. umr. málsins, og hefur hv. þm. nú dregið til baka brtt. þær sem hann flytur ásamt þingmönnunum Kristínu Einarsdóttur og Friðjóni Þórðarsyni á þskj. 387 og munu þá eingöngu koma til atkvæða brtt. frá meiri hl. hv. allshn. sem eru á þskj. 361 við 1. gr. frv. og við b - lið 2. gr.