Varamenn taka þingsæti
Þriðjudaginn 22. janúar 1991


     Forseti (Danfríður Skarphéðinsdóttir) :
    Svohljóðandi bréf hefur borist:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Halldór Ásgrímsson.``


    Þetta er ritað til forseta Ed.
    Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.