Fyrirspurnir
Fimmtudaginn 24. janúar 1991


     Ingi Björn Albertsson :
    Hæstv. forseti. Það er gott og vel að hlusta á forsrh. Það verður sjálfsagt mjög athyglisvert að heyra hans mál eins og jafnan er. Ég skal alveg fallast á það að við heyrum mál ráðherrans fyrst en ég fer fram á það að niðurstaða og úrskurður forseta verði kynntur hér á þessum fundi í dag.