Kjördagur
Þriðjudaginn 29. janúar 1991


     Forseti (Jón Helgason) :
    Eins og hv. 2. þm. Norðurl. e. er kunnugt þá situr varamaður á Alþingi fyrir hæstv. sjútvrh. Ég hef þegar beðið um að beiðni hv. 2. þm. Norðurl. e. um viðveru hans í deildinni sé til hans komið, en ég veit ekki hversu langan tíma það tekur. En ég vil spyrja um það hvort ekki sé unnt að ganga til dagskrárinnar og taka fyrir fyrsta mál á dagskrá þangað til hæstv. sjútvrh. kemur.