Málefni stundakennara
Fimmtudaginn 31. janúar 1991


     Fyrirspyrjandi (Kristín Einarsdóttir) :
    Virðulegur forseti. Aðeins örstutt athugasemd, virðulegur forseti, sem ég þakka fyrir. Ég vildi bara segja hæstv. menntmrh. það að ég held að lausnin í þessu máli, sem ég vona og trúi auðvitað að hann vilji leysa, sé að viðurkenna Samtök stundakennara við Háskóla Íslands sem samningsaðila. Ég er ekki sammála hans túlkun á lögunum, að það megi alls ekki viðurkenna þá sem samningsaðila og að standa öðruvísi að þessu máli heldur en hingað til hefur verið gert.