Reglur um fréttaflutning
Fimmtudaginn 31. janúar 1991


     Stefán Valgeirsson :
    Virðulegi forseti. Nú eiga ríkisfjölmiðlarnir að vera hlutlausir í sinni umfjöllun um allt efni. Finnst hæstv. ráðherra og hv. þm. að það sé gert ef við tökum t.d. menningarmálin annars vegar og knattspyrnuna hins vegar? Ég held að hæstv. ráðherra ætti að skoða það mál sem dæmi um hvernig umfjöllunin er í þessum fjölmiðlum.