Skipulagsnefnd um öryggis- og varnarmál
Fimmtudaginn 31. janúar 1991


     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
    Virðulegi forseti. Þessi nefnd var skipuð að frumkvæði hæstv. dómsmrh. Óla Þ. Guðbjartssonar, eins og vikið var að í svari mínu, þ.e. hún er skipuð í kjölfar þess að dómsmrh. ritar bréf þann 6. sept. sl. og fer fram á það. Þannig að það fer ekkert á milli mála.