Reiðvegaáætlun
Fimmtudaginn 07. febrúar 1991


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að færa nefndinni þakkir fyrir að hafa afgreitt þetta mál með þeim jákvæða hætti sem hér liggur fyrir. Ég veit að nefndarmenn hafa gert sér grein fyrir því hversu mikið öryggismál þetta er sérstaklega á hinum þéttbýlli svæðum landsins.