Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Þormóð ramma
Þriðjudaginn 12. febrúar 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Á þessum fundi stendur til að halda áfram umræðu utan dagskrár um málefni Þormóðs ramma. Nú stendur svo á að hæstv. fjmrh. er ekki kominn til þingsins. Hann mun vera væntanlegur innan tíðar. Forseti hefur því ákveðið að fresta þessum fundi til kl. 5.15 þar sem ég tel illviðunanlegt að hæstv. ráðherra sé ekki viðstaddur umræðuna. --- [Fundarhlé.]