Áfengislög
Miðvikudaginn 13. febrúar 1991


     Eiður Guðnason :
    Herra forseti. Þetta skal sannarlega vera mjög stutt athugasemd. Það er alveg ljóst að hv. 4. þm. Vesturl. hefur engin tengsl eða samband við það unga fólk á því reki sem hér er verið að tala um, skilur ekki sjónarmið þess eða aðstöðu. Þess vegna er alveg tilgangslaust að tala um þetta mál við hann, enda erum við báðir búnir að tala okkur dauða í málinu með því að koma hér í ræðustól þrem sinnum.