Farþegaflutningar með ferjum
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Guttormur Einarsson :
    Virðulegi forseti. Hinn málefnalegi grundvöllur þeirrar fsp. sem hér var borin fram er allrar athygli verður. Á hitt vil ég benda að hér voru staðfærð ákveðin tilvik og nefnt eitt ákveðið dæmi þar sem ekki verður hjá komist að álykta sem svo að málið beinist öðrum þræði að ákveðnum ábyrgðarmanni. Það er viðhorf mitt að slíkt hafi verið með öllu óviðeigandi.