Félagsþjónusta sveitarfélaga
Föstudaginn 15. febrúar 1991


     Geir H. Haarde :
    Virðulegi forseti. Ég vil bara þakka hæstv. menntmrh. fyrir að staðfesta þau ummæli mín að um þetta mál er ekkert pólitískt samkomulag að því er varðar X. kafla frv., kaflann um leikskóla. Það er nákvæmlega það sem ég hélt hér fram áðan. Ráðherrann hefur staðfest það. Sögulegar vangaveltur hans um meðferð stjfrv. læt ég mér að öðru leyti í léttu rúmi liggja á þessu stigi máls.