Stjórnarskipunarlög
Mánudaginn 18. febrúar 1991


     Forseti (Jón Helgason) :
    Eins og fram hefur komið í máli hv. ræðumanna var tillaga frá frsm. um að vísa málinu til allshn. eins og gert var í Nd. Hins vegar hefur hv. 4. þm. Vestf. lagt til að kosin verði sérstök nefnd um málið og þar sem sú tillaga gengur lengra, þá verður hún að sjálfsögðu borin undir atkvæði fyrst.