Endurgreiðsla á gjaldi af erlendum lánum
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Karvel Pálmason :
    Virðulegur forseti. Hér er vissulega um mikið réttlætismál að ræða og full þörf hefði verið á því að málið fengi endanlega afgreiðslu á hv. Alþingi. Hér er tillaga um það að vísa málinu til ríkisstjórnar. Að vísu hef ég ekki sterkar taugar þangað en enn eygir maður kannski von um það að menn sjái að sér í þeim herbúðum. Í trausti þess að það verði gert segi ég já.