Þroskaþjálfaskóli Íslands
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Frsm. heilbr.- og trn. (Guðmundur G. Þórarinsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir áliti heilbr.- og trn. um frv. til laga um Lyfjatæknaskóla Íslands og Þroskaþjálfaskóla Íslands til menntmrn.
    Nefndin hefur fjallað ítarlega um frv. og fengið til viðræðna Bryndísi Víglundsdóttur, skólastjóra Þroskaþjálfaskólans, Margréti Ríkharðsdóttur, formann Félags þroskaþjálfa, Sigrúnu Valdimarsdóttur, skólastjóra Lyfjatæknaskólans, Einar Magnússon, formann skólastjórnar Lyfjatæknaskólans, Önnu Sveinsdóttur, formann Lyfjatæknafélags Íslands, og Elínu Þrúði Theódórsdóttur, varaformann félagsins. Umsagnir bárust frá Lyfjatæknafélagi Íslands, en auk þess var stuðst við umsagnir sem nefndinni bárust á 112. þingi, en þá var málið ekki afgreitt.
    Nefndin telur að einungis sé tímabært að flytja Þroskaþjálfaskóla Íslands til menntmrn. en skoða þurfi nánar hvernig verði staðið að flutningi Lyfjatæknaskólans og Ljósmæðraskólans. Nefndin telur ekki ástæðu til að breyta á þessu stigi lagaákvæðum um Sjúkraliðaskólann. Einnig þarf að breyta 6. gr. frv. og heiti þess.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
    Geir H. Haarde var fjarstaddur afgreiðslu málsins en aðrir nefndarmenn heilbr.- og trn. rita undir það nál. sem hér liggur fyrir.
    Brtt. eru á þskj. 660 og eru þess efnis að 1., 2., 4. og 5. gr. og seinni málsl. 6. gr. falli brott, sem og að fyrirsögn frv. orðist svo: Frv. til laga um breytingu á lögum um Þroskaþjálfaskóla Íslands, nr. 40/1985.