Öryggi fjarskiptaþjónustu í Húnavatnssýslum
Fimmtudaginn 21. febrúar 1991


     Fyrirspyrjandi (Jón Sæmundur Sigurjónsson) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. fyrir mjög ítarleg svör. Þau voru þess eðlis að ég held að þau eyði því óöryggi sem ríkt hefur eftir það óveður sem geisaði í byrjun ársins. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt að þessar upplýsingar komi fram og þeim sé komið til réttra aðila.