Vetnisframleiðsla
Fimmtudaginn 21. febrúar 1991


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Ég vísa því harðlega á bug að þetta sé gert til þess að tefja málið. Þegar það loksins kemst á skrið, þá finnst mér það furðu sæta að hv. þm. skuli leyfa sér að kalla það tafir. Og það er enn fjarstæðukenndara að halda því fram að Braga Árnasyni sé á nokkurn hátt ýtt til hliðar með þessum hætti. Þvert á móti er þarna skýr tenging við Háskóla Íslands og það starf sem þar fram fer, reyndar að höfðu samráði við rektor Háskólans.