Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseta var nauðugur einn kostur að fresta þessari umræðu um skýrslu um þingmannanefnd EFTA um sinn þar sem leyfð hafði verið hálftíma umræða um meðferð trúnaðarskjala forsrn. um málefni Seyðisfjarðar. Beiðandi þeirrar umræðu er hv. 5. þm. Austurl. og tekur hann nú til máls.