Eftirlit með matvælum
Miðvikudaginn 27. febrúar 1991


     Flm. (Ásgeir Hannes Eiríksson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum, nr. 24 frá 1. febr. 1936.
    Ég rakti tilgang flutnings þessa lagafrumvarps í ræðu minni áðan þegar ég talaði fyrir frv. til laga um breytingu á lyfjalögunum og ég læt þann málflutning duga. Ég mæli með að þessu frv. verði vísað til heilbr.- og trn.