Langtímaáætlun í vegagerð
Fimmtudaginn 28. febrúar 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna þessara orða hv. 2. þm. Norðurl. e. hafði forseti ekki gert sér grein fyrir öðru en að á bls. 2 í athugasemdum við þáltill. er getið nefndarmanna og forseti hafði skilið það svo að það þingskjal sem hér liggur fyrir væri verk þeirra allra. En hæstv. samgrh. ætlar nú að skýra þetta og óskar forseti eindregið eftir því.