Vegáætlun 1991-1994
Fimmtudaginn 28. febrúar 1991


     Eiður Guðnason :
    Virðulegi forseti. Vegna orða hv. 1. þm. Vesturl. vil ég aðeins segja eftirfarandi: Ég hafði engar spurnir af þessum fundi fjvn. sem hann nefndi, en eftir að hann viðhafði ummæli sín í ræðustól hef ég spurt um þann fund. Ég hef ekki getað fengið staðfest að hann hafi sagt þar það sem hann nú segist hafa sagt eða kannski vildi hafa sagt. Ég hef ekki fengið það staðfest og ég stend við hvert einasta orð af því sem ég sagði hér áðan, vegna þess að það er satt. En stundum er það svo að sannleikanum verður hver sárreiðastur. Fleira ætla ég ekki, virðulegi forseti, að segja um þetta mál.