Vegáætlun 1991-1994
Fimmtudaginn 28. febrúar 1991


     Eiður Guðnason :
    Virðulegi forseti. Vegna þessara orða hv. 1. þm. Vesturl. mun ég óska eftir því við formann fjvn. að það verði flett í fundagerðarbókum fjvn. til þess að sjá hvort hv. þm. viðhafði þau ummæli sem hann segist hafa viðhaft. Og það sem meira er, ég mun óska eftir því að málið verði tekið fyrir í fjvn. einfaldlega til þess að það komi í ljós og þeir verði spurðir sem þar voru, bæði þá þingmenn og einnig þeir embættismenn sem fylgdust með umræðum, hvor okkar segir satt í þessu máli. Það er nauðsynlegt að fá úr því skorið og ég er allsendis óhræddur, virðulegi forseti, við þann úrskurð.