Grunnskóli
Þriðjudaginn 05. mars 1991


     Ásgeir Hannes Eiríksson :
    Virðulegi forseti. Það kemur mér ekki á óvart að stjórnarandstaðan skuli vilja vísa þessu til ríkisstjórnarinnar. Hún treystir betur stjórninni en að greiða hér sjálf atkvæði. Mér finnst hins vegar eðlilegast að þingið greiði atkvæði um öll mál. Þess vegna er ég á móti því að þessu sé vísað til stjórnarinnar og segi nei.