Starfskjör presta þjóðkirkjunnar
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 802 um frv. til laga um starfskjör presta þjóðkirkjunnar. Þetta nál. er frá fjh.- og viðskn. Frv. var rætt á fundi í morgun og voru allir nefndarmenn sammála um afgreiðslu þess.
    Í nál. segir svo:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.`` Undir þetta rita, eins og ég áður sagði, allir nefndarmenn.