Byggðastofnun
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Forseti (Jón Helgason) :
    Ég hef orðið við beiðni hv. 2. þm. Norðurl. e. um það að fá hæstv. forsrh. hingað. Eins og hv. þm. er kunnugt var þetta mál ekki sett inn á hina prentuðu dagskrá, það var tekið inn með afbrigðum þannig að mér láðist að láta forsrh. vita fyrir fram um að þetta væri komið inn á dagskrána, en hann er á leiðinni inn í húsið.