Efndir við loðdýrabændur
Fimmtudaginn 07. mars 1991


     Árni Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Vegna þeirra ummæla sem hér hafa komið fram um að ekki hafi borist formleg ósk um niðurfellingu á lántökugjaldi til ríkisbankanna vil ég láta þess getið að formleg beiðni hefur farið til hæstv. ríkisstjórnar um að hún beiti sér fyrir því að ríkisbankarnir felli niður lántökugjald vegna skuldbreytinga hjá loðdýrabændum.