Héraðsskógar
Mánudaginn 11. mars 1991


     Frsm. landbn. (Skúli Alexandersson) :
    Herra forseti. Ég hef kynnt mér afstöðu nefndarmanna í landbn. deildarinnar til frv. eftir þá breytingu sem gerð var á því í neðri deild. Nefndarmenn eru allir sammála því að samþykkja frv. á þann hátt sem það hefur komið til okkar aftur frá neðri deild.