Vegrið
Mánudaginn 11. mars 1991


     Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson) :
    Virðulegi forseti. Á þskj. 840 er nál. allshn. um till. til þál. um uppsetningu vegriða.
    Nefndin hefur fjallað um tillöguna. Umsagnir bárust frá Slysavarnafélagi Íslands, Umferðarráði og landlækni. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Undir þetta skrifa Guðni Ágústsson, Jón Kristjánsson, Kristinn Pétursson, Ingi Björn Albertsson, Guðrún Helgadóttir, Karl Steinar Guðnason og Eggert Haukdal.