Gjaldþrotaskipti o.fl.
Þriðjudaginn 12. mars 1991


     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson) :
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um gjaldþrotaskipti o.fl. á þskj. 869.
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. Fékk hún Markús Sigurbjörnsson prófessor og Guðbjörn Jónsson frá G-samtökunum á sinn fund. Auk þess kannaði nefndin umsagnir sem lágu fyrir allshn. efri deildar.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerðar voru í meðförum efri deildar.``
    Undir nál. rita Jón Kristjánsson, Ólafur G. Einarsson, Guðni Ágústsson, Ingi Björn Albertsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Friðjón Þórðarson og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.