Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri
Þriðjudaginn 12. mars 1991


     Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Guðný Guðbjörnsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég vil hér gera stutta grein fyrir nál. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri sem liggur hér frammi á þskj. 883.
    Í upphafi máls míns vil ég mótmæla því sem formaður nefndarinnar sagði að brtt. minni hl. gengju lengra heldur en frv. Allar þær brtt. sem Kvennalistinn leggur fram eru í þá átt að minnka hér þá opnun sem til stendur.
    Margoft hefur verið bent á nauðsyn þess að samræma lög og reglur um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri á Íslandi þar sem gildandi ákvæði eru bæði ósamstæð og óljós. Straumur fjárfestinga landa á milli fer vaxandi og nauðsynlegt er að hafa stjórn á hvernig hann fer fram og að reglur um hann séu fastmótaðar.
     Samvinna við erlenda aðila í atvinnurekstri hér á landi getur haft ýmsa kosti í för með sér, svo sem aðgang að tækniþekkingu, markaði og viðskiptasamböndum, auk þess sem erlent áhættufé getur komið í staðinn fyrir erlent lánsfé við fjármögnun atvinnufyrirtækja hér á landi. Því má segja að þetta frv. sé tímabært og í samræmi við þá þróun sem á sér stað í alþjóðlegu efnahagslífi.
     Samkvæmt frv. og fylgifrv. á að útiloka að erlendir aðilar geti átt eignarhlut í fiskiskipum sem stunda veiðar í íslenskri landhelgi. Þessu er 1. minni hl. samþykkur. Ákvæði frv. um fiskvinnslu eru hins vegar ekki eins afdráttarlaus og opna fyrir erlenda eignaraðild að vissu marki.
     Kvennalistakonur vilja vara við slíkri hlutdeild útlendinga í aðalútflutningsiðnaði landsmanna og telja að hið sama skuli gilda um fiskveiðar og fiskvinnslu. Því flytur 1. minni hl. brtt. við 2. tölul. 4. gr.
     Eftirliti með fjárfestingum erlendra aðila hér á landi hefur verið mjög ábótavant og erfitt hefur verið að hafa yfirsýn yfir þessar fjárfestingar. Þetta atriði er ekki tryggt með þessu frv. Ekki verður séð hvernig unnt á að vera að meta heildarfjárfestingu í hverri atvinnugrein eins og gert er ráð fyrir skv. 7. tölul. 4. gr. Þessi ákvæði eru því haldlítil. Í umsögnum um frv. hafa fjölmargir aðilar bent á þetta atriði. Oft þykir óljóst við hvað er átt með ,,atvinnugrein`` í 7. tölul. 4. gr. Heildarfjárfesting erlendra aðila í hverri atvinnugrein fyrir sig má ekki vera yfir 25% nema til komi ,,leyfi viðskiptaráðherra``. Einnig er óljóst af hvaða stofni 25% eiga að reiknast, hvort takmörkun miðist við árlega fjárfestingu eða heildarfjárhæð erlends fjármagns af eigin fé hverrar atvinnugreinar alls.
     Vegna þessara annmarka er hér lögð fram sú brtt. á sérstöku þskj. og mælt með að heildarfjárfesting erlendra aðila í hverju atvinnufyrirtæki verði aldrei yfir 49%.
    Fyrsti minni hl. leggur áherslu á að Íslendingar missi ekki úr höndum sér stjórn á nýtingu landsins til ferðaþjónustu. Ekki er lögð til ákveðin brtt. hér, þar sem gert er ráð fyrir að ákvæði 24. gr. frv. um ferðaþjónustu muni gilda verði það frv. að lögum. Það sama á við um útvarp, sjónvarp og fjölmiðlun almennt. Því er hér lögð til sú breyting við fylgifrv. um breytingu á lagaákvæðum er varða fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri að 20. gr. þess verði felld brott.
     Íslenska hagkerfið er mjög viðkvæmt vegna þess hve einsleitt atvinnulífið er og byggist að meginhluta til á einni auðlind, fiskinum í sjónum. 1. minni hl. þykir því eðlilegt að taka nokkru smærri skref en frv. gerir ráð fyrir til að tækifæri gefist til að skoða afleiðingarnar. Leiðin til baka er mjög erfið. Fjölmargar þjóðir hafa kosið að fara varlega í þessum efnum og er fyllsta ástæða fyrir Íslendinga að gera það einnig. Því þykir 1. minni hl. rétt að sú regla gildi að þeir geti ekki átt meiri hluta hlutafjár í atvinnu - eða þjónustufyrirtækjum á Íslandi.
     Að lokum er ítrekað það álit 1. minni hl. að þess verði ávallt gætt að erlendum aðilum beri skilyrðislaust að fara eftir lögum, reglum og hefðum íslensks vinnumarkaðar, kjarasamningar íslenskra stéttarfélaga verði eftir sem áður í gildi, svo og allar reglur um aðbúnað, hollustuhætti og vinnuvernd. Þá þykir ljóst að stórátak verður að gera í að herða öll lög og reglur er varða umhverfisvernd og mengunarvarnir.