Næturfundir o.fl.
Þriðjudaginn 12. mars 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill geta þess að hér eru nú í húsinu 26 hv. þm. Forseti sér ekki ástæðu til að sækja þá hér til umræðna og hið sama gildir um hæstv. ráðherra sem hér eru ekki. Forseti óskar eftir að fresta þessum fundi í fimm mínútur. Ef hv. 14. þm. Reykv. vill tala um þingsköp áður þá verður það leyft.