Kvöldfundir
Miðvikudaginn 13. mars 1991


     Málmfríður Sigurðardóttir :
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins endurtaka það sem ég sagði áðan í upphafi máls míns að ég kannast ekki við að ég hafi samið fyrir hönd Kvennalistans um eitt eða neitt eða yfirleitt að það hafi verið samið við mig. Þetta vil ég taka fram svo að það liggi alveg skýrt fyrir.