Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson) :
    Hæstv. forseti. Á þskj. 880 er nál. frá allshn. um till. til þál. um gerð staðfræðikorta, gróðurkorta og landfræðilegt upplýsingakerfi.
    Nefndin hefur fjallað um tillöguna og leggur til að hún verði samþykkt óbreytt.
    Eggert Haukdal var fjarstaddur afgreiðslu málsins.
    Undir nál. rita Guðni Ágústsson, Jón Kristjánsson, Ingi Björn Albertsson, Guðrún Helgadóttir, Karl Steinar Guðnason og Kristinn Pétursson.