Barnalög
Föstudaginn 15. mars 1991


     Fyrirspyrjandi (Sólveig Pétursdóttir) :
    Hæstv. forseti. Ég fagna þessum orðum hæstv. dómsmrh. og tel sérstakt fagnaðarefni að þarna sé grundvöllurinn hagsmunir barnsins, þeir hagsmunir séu fyrst og fremst hafðir að leiðarljósi. Það er grundvöllur í öllu barnaverndarstarfi og börn hafa því miður haft allt of fáa talsmenn fyrir sínar þarfir.