Skúli Alexandersson :
    Herra forseti. Það frv. sem hér er verið að fjalla um og tekið hefur verið á dagskrá er fylgifrv. þess frv. sem við vorum að fjalla um hér á undan. Þetta frv. hefur einnig verið rætt í fjh. - og viðskn. Nefndin náði ekki samkomulagi. Meiri hl. leggur til að það verði samþykkt með þeim breytingum sem gerðar voru á frv. í Nd. Meiri hl. skipa Guðmundur Ágústsson, Jóhann Einvarðsson, Eiður Guðnason og Skúli Alexandersson.