Leikskóli
Föstudaginn 15. mars 1991


     Guðrún J. Halldórsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég er sá fulltrúi sem Kvennalistinn á í menntmn. og ég lýsti því yfir í kvöld þegar við ræddum þessi mál að ég mundi styðja þetta frv. þó ég liti svo á að það gengi að mjög mörgu leyti allt of skammt. Það er þess vegna sem ég hef ekki skrifað undir álit meiri hl. nefndarinnar. Ástæðan var sú að ég áleit að það væri búið að taka tennurnar úr þessu frv. að mörgu leyti en ég lýsti því jafnframt yfir þá, eins og ég geri nú, að ég mun eigi að síður greiða atkvæði með þessu frv.
    Það var aðeins þetta, sem olli því að ég skrifaði ekki undir, að mér fannst það ekki ganga eins langt og ég hefði viljað.