Byggðastofnun
Föstudaginn 15. mars 1991


     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson) :
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um breytingar á lögum nr. 64 1. júlí 1985, um Byggðastofnun. Nefndin hefur fjallað um frv. og rætt við Guðmund Malmquist, forstjóra Byggðastofnunar. Lagt er til að frv. verði samþykkt óbreytt.
    Jón Kristjánsson, Ólafur G. Einarsson, Friðjón Þórðarson, Ingi Björn Albertsson, Guðni Ágústsson, Rannveig Guðmundsdóttir og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir skrifa undir nál.