Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Hér er um að ræða fylgifrv. við frv. til laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri og er um að ræða framhaldsnefndarálit. Nefndin hefur flutt nokkrar brtt. og fallist á þær ábendingar sem fram hafa komið og leggur til að frv. verði samþykkt.