Félagsþjónusta sveitarfélaga
Föstudaginn 15. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Vegna fyrirspurnar hv. síðasta ræðumanns þá hefur forseti skilið það svo hina síðustu daga þessarar viku þegar umræður hafa farið fram um forgangsmál hæstv. ríkisstjórnar að það væri talið æskilegt, ekki bara af hálfu stjórnarflokkanna heldur af hálfu þingflokksformanns Sjálfstfl., að þessi mál yrðu samferða í gegnum þingið, ég vil þó ekki fullyrða hversu langt, en að þau yrðu í samfloti.