Frsm. meiri hl. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Frv. um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla var lagt fyrir 112. löggjafarþing. Það var lagt fram hér í Nd., afgreitt frá nefnd á síðasta þingi undir lok þinghalds og afgreitt héðan úr deildinni í einu hljóði. Það náði hins vegar ekki áfram afgreiðslu í gegnum Ed. á því þingi og kom til afgreiðslu þings á þessum vetri öðru sinni. Hins vegar gerðist það að í meðförum Ed., þar sem frv. var lagt fram að þessu sinni, var gerð á því breyting þannig að það kom breytt til Nd. og félmn. Nd.
    Sú nefnd hefur fjallað um frv. Nál. er svohljóðandi:
    ,,    Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur meiri hl. nefndarinnar til að það verði samþykkt með breytingu sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali.
    Brtt. meiri hl. nefndarinnar varðar 1. mgr. 19. gr. frv. um skipan kærunefndar jafnréttismála. Í meðferð Ed. var skipan kærunefndar breytt frá frv. eins og það var lagt fram. Frumvarpið gerði ráð fyrir að nefndarmenn væru þrír og að Hæstiréttur tilnefndi einn, er væri jafnframt formaður, Kvenréttindafélag Íslands tilnefndi einn og félmrh. skipaði einn án tilnefningar. Ed. breytti skipan kærunefndar á þann veg að Hæstiréttur tilnefndi einn, félmrh. skipaði tvo án tilnefningar og að Alþýðusamband Íslands og Vinnuveitendasamband Íslands tilnefndu einn nefndarmann hvort. Framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs hefur mælt gegn þessari breytingu Ed. Jafnframt hafa Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Bandalag háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna lýst andstöðu við breytingar Ed. Í þessu sambandi má á það benda að óeðlilegt er að VSÍ og ASÍ eigi fasta fulltrúa í kærunefnd en ekki t.d. BSRB eða BHMR, ekki síst í ljósi þess að um 90% af öllum kærum, sem ráðið fær til meðferðar, eru frá opinberum starfsmönnum eða bankamönnum. Kærur, sem tengjast almenna vinnumarkaðinum, eru mjög fáar. Á það má svo einnig benda að með breyttri skipan kærunefndar samkvæmt afgreiðslu Ed. líkist kærunefnd orðið allmikið Jafnréttisráði og því vaknar sú spurning hvort aðgreiningin í Jafnréttisráð og kærunefnd sé ekki þar með orðin óþörf.
    Með hliðsjón að þeim deilum, sem ríkja um skipan kærunefndar, telur meiri hl. nefndarinnar heppilegast að engin félagasamtök eigi aðild að kærunefnd heldur verði nefndin skipuð tveimur lögfræðingum tilnefndum af Hæstarétti og einum tilnefndum af félmrh. Meiri hl. telur hins vegar jafnframt eðlilegt að þegar um er að ræða mál sem ætla má að geti haft stefnumarkandi áhrif á vinnumarkaðinn í heild skuli kærunefnd leita umsagnar frá heildarsamtökum launþega og viðsemjendum þeirra.``
    Undir þetta nál. skrifa Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Jón Kristjánsson og Geir H. Haarde og Eggert Haukdal með fyrirvara.
    Brtt. orðast svo, virðulegi forseti:
    ,,Félmrh. skipar kærunefnd jafnréttismála til þriggja ára í senn og skulu nefndarmenn vera lögfræðingar.

Félmrh. skipar einn án tilnefningar og Hæstiréttur tilnefnir tvo, þar af annan sem formann nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Þegar um er að ræða mál sem ætla má að geti haft stefnumarkandi áhrif á vinnumarkaðinn í heild skal kærunefnd leita umsagnar frá heildarsamtökum launþega og viðsemjendum þeirra.``
    Ég legg til að þetta frv. verði samþykkt með þessari breytingu.