Geir H. Haarde :
    Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. meiri hl. félmn. með fyrirvara en í trausti þess að nú verði brátt gefið matarhlé eftir þann fund sem staðið hefur frá því kl. 10 í morgun, þá hyggst ég ekki gera sérstaka grein fyrir mínum fyrirvara en vísa til framsögu formanns nefndarinnar og mun styðja málið og brtt. með þeim hætti sem hún gerði grein fyrir.