Félagsþjónusta sveitarfélaga
Mánudaginn 18. mars 1991


     Frsm. meiri hl. félmn. (Margrét Frímannsdóttir) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hl. félmn. um frv. til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Nefndin hélt einn fund um málið. Meiri hl. hennar leggur til að frv. verði samþykkt eins og það kom frá hv. Nd. þar sem voru gerðar þær breytingar á því að felldur var brott X. kafli frv. um málefni leikskóla og ákvæði sem snerta leikskóla falla nú undir kaflann um málefni barna og ungmenna. Aðrar breytingar sem meiri hl. félmn. Nd. lagði til voru minni háttar lagfæringar á frv.
    Undir nál. skrifa auk frsm. Jóhann Einvarðsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Karl Steinar Guðnason og Jón Helgason. Hv. þm. Salome Þorkelsdóttir var fjarstödd afgreiðslu málsins.