Húsnæðisstofnun ríkisins
Mánudaginn 18. mars 1991


     Geir H. Haarde :
    Herra forseti. Hér er verið að gera heiðarlega tilraun til þess að koma ákvæði inn í lögin um Húsnæðisstofnun ríkisins, félagslega kerfið, sem hefur verið í því frá upphafi en var fellt niður illu heilli af núv. ríkisstjórnarmeirihluta í fyrra. Eins og hv. þm. Alexander Stefánsson hefur lýst, þá er þetta mjög mikilvægt ákvæði fyrir þá sem eiga undir högg að sækja í þessum málum. Ég segi já.