Þingsályktunartillögur
Mánudaginn 18. mars 1991


     Eiður Guðnason :
    Virðulegi forseti. Ég held að það sé alveg ljóst að hér er um venjulega þáltill. að ræða en ekki framkvæmdaáætlun í skilningi þingskapa. Sömuleiðis er aðeins rétt að ítreka að þó að, eins og hv. 1. þm. Reykv. Friðrik Sophusson réttilega segir, skýrsla orkuverðsjöfnunarnefndar sé drjúgur hluti þessa þskj., þá er hún auðvitað prentuð sem fskj.