Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Friðrik Sophusson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Sé það svo að hv. stjórnarliðar séu nú loks að koma sér saman um lausn á þeim miklu vandamálum sem á herðum þeirra hafa hvílt að undanförnu, þ.e. að geta tekið ákvörðun um það hvernig ljúka skuli þessu þingi, þá er auðvitað sjálfsagt að afsaka fjarveru hæstv. iðnrh. um nokkurra mínútna skeið.