Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Pálmi Jónsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Það er rétt hjá hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni að það var lögð mikil vinna í þá skýrslu sem hér er lögð fyrir og skrifuð var til iðnrh. Það var lítil vinna lögð í þá till. sem hér liggur fyrir, enda er hún gagnslítil eða gagnslaus.
    Ég legg til að till. verði vísað til nefndar eins og gerð er hér tillaga um af hæstv. forseta.