Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Friðrik Sophusson :
    Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra lagði til að þetta mál færi til fjvn. Þar sem ég hef komið að þessu starfi nokkuð og þekki tillöguna þá sýnist mér ekki veita af því að í hv. fjvn. verði málið skoðað og það betrumbætt. Það tekur sinn tíma, en ég samþykki till. hæstv. ráðherra og segi já.