Halldór Blöndal :
Herra forseti. Ég vil auðvitað ítreka það að frv. Valgerðar Sverrisdóttur varð til þess að þetta mál hefur komist nokkuð á rekspöl þó efni brtt., eins og hún lítur nú út, sé auðvitað á allt öðrum og breiðari grundvelli raunar og skattapólitískt á réttum grundvelli. En það er ekki nóg að gefa í skyn að maður vilji standa á móti óréttlætinu. Það er ekki nóg að segja að það eigi að vera komið undir framkvæmd einhverra allt annarra hvort óréttlætið nái fram að ganga eða ekki. Spurningin er einungis sú: ætlum við að leiðrétta þetta eða ekki? Nú tala ég heilum munni allra launþega í landinu þegar ég segi að það sé óþolandi, ef menn standa í skilum með staðgreiðsluskatta af sínum tekjum, að ríkið geti komið eftir á og farið að sekta fólk út af einhverjum einum pappírssnepli sem ber yfirskriftina ,,Framtal``.